Alls verður 205 af þeim 315 starfsmönnum sem Airport Associates sagði upp á dögunum boðinn nýr ráðningarsamningur. Forstjóri félagsins segir gjaldþrot WOW air hafa óumflýjanlega breytt vaktatöflum og starfshlutfalli starfsmanna, enda var um helmingur af verkefnum Airport Associates tengd flugfélaginu. Þetta þýðir að margir þeirra sem sagt var upp munu fá boð um minna starfshlutfall. Mbl.is greinir frá.
Um 400 manns starfa hjá Airport Associates í dag. „Það stóð alltaf til að ráða aftur fólk, það var vitað að stór hluti fengi boð um áframhaldandi störf. Það er gjörbreyttur vinnutími og vaktir og í því felst að margir fá boð um minna starfshlutfall,“ segir Sigþór Kristinn Skúlason, forstjóri Airport Associates, í samtali við Mbl.is.
Hann bætir því við að með því að minnka starfshlutfall gefist Airport Associates kostur á að bjóða fleirum að halda starfi sínu, með það fyrir augum að minnka höggið.
Sigþór segir að nokkur erlend flugfélög sem þegar fljúgi til Íslands hafi haft samband við félagið með það fyrir augum að fjölga flugum til landsins. „Við svona aðstæður hafa menn alltaf áhuga á að sjá hvað er hægt að gera. Það er verið að skoða hvort hægt sé að fylla þetta stóra skarð sem WOW skilur eftir sig.“