2017 er klikkaðasta árið til þessa

Hafi árið 2016 verið stórfurðulegt í pólitík, viðskiptum og menningu hér á landi er árið 2017 það klikkaðasta til þessa, að því einn viðmælenda annálsþáttar Hringbrautar í kvöld hefur á orði.

Það verður líf og fjör í myndveri Hringbrautar í kvöld og gestkvæmt eftir því, en þar munu Guðmundur Steingrímsson, fyrrverandi þingmaður og Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans gera upp stjórnmálaárið áður en Henný Hinz, aðalhagfræðingur Alþýðusambands Íslands og Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins rýna í helstu einkenni efnahagsársins. 

Loks fara fjöllistakonan Margrét Erla Maack og leikarinn og leikstjórinn Ólafur Egil Egilsson yfir menningu og mannlíf ársins í einstaklega fjörlegu spjalli sem lætur engan ósnortinn.

Þátturinn Árið 2017 hefst klukkan 20:00 í kvöld og er í umsjá þeirra Lindu Blöndal, Péturs Einarssonar og Sigmundar Ernis Rúnarssonar.