2015 annað órólegasta veðurárið

\"Hvenær kemur ár sem ekki er óvenjulegt? Svar: Líklega aldrei, því þegar loks kemur að því þá hlýtur það að teljast óvenjulegt fyrir venjulegheitin ein - nema hvað,\" spyr Trausti Jónsswon, veðurfræðingur á vef sínum, Hungurdiskum.  

Þegar hann rýnir í veðurfar síðasta árs eins og honum einum er lagið kemur í ljós að árið 2015 fellur varla nærri því að vera venjulegt: \" Ritstjóri hungurdiska er óðaönn að taka upp úr garðinum og grefur þá eins og venjulega upp þrýstióróavísinn sem hann hefur ræktað af mestu umhyggju síðan í upphafi aldarinnar,\" skrifar Trausti og útskýrir að téður vísir mæli meðalbreytileika loftþrýstings frá degi til dags. Mögulegt sé að reikna þennan óróa aftur til fyrri hluta 19. aldar - og niðurstaðan sé þessi: \"Uppgjör ársins 2015 sýnir að vísirinn hefur aðeins einu sinni (á ársvísu) orðið hærri en nú - það var 1854.\" 

Hvað segir svo þessi ágæti vísir, spyr Trausti því næst: \"Að sumu leyti mælir hann umhleypinga - órói í loftþrýstingi tengist lægðagangi - og þar með fjarlægð heimskautarastarinnar. Samband er á milli vísisins og loftþrýstings þannig að þegar þrýstingur er lágur er óróavísirinn hár - og öfugt. En ekki er sambandið þó alveg einhlítt - sem veitir túlkunarglöðum rými til að láta ljós sitt skína.\" 

Trausti segir að sömuleiðis sé nokkuð samband á milli óróavísis og meðalvindhraða: \"Því hærri sem óróavísirinn er því meiri er meðalvindhraði. Þetta er ánægjulegt að því leyti að mikil og erfið brot eru í vindmæliröðum - og hjálpar því við að komast yfir þau (séu menn sæmilega djarfir).\"  

Hann bendir á myndina sem hér fylgir með: Lárétti ásinn sýni tíma. Sá lóðrétti óróavísinn. Þótt mikið suð sé á ferð - sjáist þó dálítil klasamyndun - óróaár fylgist oft að - og róleg ár líka. Á síðustu árum hafi verið stutt öfganna á milli: \"Árið 2010 var eitt hið rólegasta síðan á 19. öld - en árið í ár aftur á móti í algjöru hámarki - þannig séð afturhvarf til hámarksklasans frá 1983 til 1994 - sem eldri veðurnörd muna sem sérlega skítatíð,\" skrifar Trausti á almennilegri íslensku. 

Hann segir að hafa beri í huga að þetta séu ársmeðaltöl - bakvið þau búi árstíðir og mánuðir sem kunni að hegða sér öðruvísi. Að velta sér upp úr því sé þó varla áhugamál annarra en útnörda - \"veðurvita eilífðarinnar“. Sýna beri öðrum vægð, skrifar Trausti, kankvís að vanda.