Það hefur verið gagnrýnt að stjórnmálamenn hafa fundið sjálfum sér farveg í Seðlabankanum. Þegar þeir hafa hætt í stjórnmálum hafa þeir skipað sig bankastjóra í Seðlabankanum, eða fengið samstarfsmenn til þess. Tómas Árnason, Steingrímur Hermannsson og Finnur Ingólfsson frá Framsóknarflokki og Birgir Ísleifur Gunnarsson og Davíð Oddsson frá Sjálfstæðisflokki. Margir eru sannfærðir um að þetta hafi verið og sé röng stefna og hún gangi ekki. Seðlabanki verði að hafa óskorað mannorð og um hann leiki ekki vafi eða efasemdir um ágæti hans og hlutleysi. Seðlabankinn þarf ekki síður á virðingu að halda en Hæstiréttur.
Mjaltavél handa stjórnmálastéttinni
Þorvaldur Gylfason, hagfræðiprófessor við Háskóla Íslands, er einn þeirra sem hafa gagnrýnt Seðlabankann hvað harðast. Hann er langt í frá sá eini sem það gerir. Þorvaldur hefur þetta að segja um Seðlabankann: „Seðlabankinn er og hefur lengi verið mjaltavél handa stjórnmálastéttinni. Að vísu eru ekki mikil brögð að því, að óhæfu fólki sé troðið inn í bankann, enda er starfsliðið þar prýðilegt á heildina litið. Misnotkunin hefur beinzt að yfirstjórninni. Stjórnmálamenn hafa haldið áfram að troða sjálfum sér og hverjir öðrum í bankastjórastöður, og tók steininn úr, þegar Davíð Oddsson, fyrrum forsætisráðherra, settist sjálfur inn í bankann, þegar hann hafði fengið sig fullsaddan af pólitík og gagnkvæmt. Það hlýtur að vera dýrasta hvíldarinnlögn Íslandssögunnar eins og búið hefur verið að launakjörum hans í bak og fyrir, þótt hann kunni fæst af því, sem seðlabankastjórum er nauðsynlegt að kunna í öðrum löndum. Hann gerðist meira að segja ritstjóri Fjármálatíðinda, elzta og helzta tímarits hagfræðinga á Íslandi, og birti þar meðal annars efnis tæknilega ritgerð um „þvinguð splæsiföll“.
Einhver kynni að halda, að „þvinguð splæsiföll“ hljóti að lýsa atbeina bankaráðsins við bankastjórann, svo mjög sem bankaráðið hefur splæst á hann gegn betri vitund og velsæmi. Fjármálatíðindi fóru sömu leið og Þjóðhagsstofnun; þau voru lögð niður. Bankaráð Seðlabankans hefur aldrei breytt neinu nema launum bankastjóranna, ævinlega til hækkunar, og fyrir það þiggja flokksgæðingarnir þar á annað hundrað þúsund krónur á mánuði hver um sig, þar á meðal einn, sem hefur fengið dóma bæði fyrir meiðyrði og ritstuld. Og hagstjórnin? Hvernig er hún? Hún er þannig, að Lehman Brothers, eitt elzta og helzta fjármálafyrirtæki heimsins, spáir því í glænýrri skýrslu, að nær helmingslíkur séu á fjármálakreppu á Íslandi næstu misseri, enda eru flestir mælar rauðglóandi. En bankastjórinn er ólæs á mælana, og enginn þorir að segja honum til.“
Nánar á
http://www.midjan.is/2008-dyrasta-hvildarinnlognin/