20.000 börn í leikskólum landsins

19.938 börn sóttu leikskóla á Íslandi í desember árið 2014 og hafa aldrei verið fleiri. Leikskólabörnum fjölgaði um 225 frá desember 2013, eða um 1,1%. Eins árs börnum fjölgaði mest, úr 34,0% í 41,2% af árganginum. Tæplega 86% barna á aldrinum 1-5 ára voru skráð í leikskóla og hefur það hlutfall aldrei verið hærra.

Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofunni.

Starfsfólk í leikskólum á Íslandi hefur einnig aldrei verið fleira en í desember 2014. Þá störfuðu 6.019 manns í 5.289 stöðugildum, 3,3% fleiri en árið áður.

Í desember 2014 nutu 1.524 börn sérstaks stuðnings vegna fötlunar, félagslegra eða tilfinningalegra erfiðleika, 7,6% leikskólabarna. Þetta er fjölgun um 324 börn frá fyrra ári (27,0%). Aðeins einu sinni áður hefur hlutfall barna sem njóta stuðnings verið yfir 7% en það var árið 2009; 7,3%. Eins og undanfarin ár eru fleiri drengir í þessum hópi og nutu 1.031 drengur (68%) og 493 stúlkur (32%) stuðnings árið 2014.

 Hagstofan hefur frá árinu 2001 skoðað ríkisfang leikskólabarna. Árið 2001 voru 159 börn í leikskólum landsins með erlent ríkisfang, 1,0% leikskólabarna en 1.234 í desember 2014, 6,2% leikskólabarna. 

Á sama tímabili hefur börnum með erlent móðurmál fjölgað úr 755 (4,8% leikskólabarna) í 2.197 (11,0%).