200 manns bíða eftir hjartaaðgerð

Biðlisti eftir hjarta- og/eða kransæðamyndatöku er að mestu óbreyttur frá því í febrúar. Það er áhyggjuefni að um 200 sjúklingar bíði eftir þessum aðgerðum, þar af hafa 102 sjúklingar beðið meira en þrjá mánuði.

Þetta kemur fram á vef landlæknis en embættið hefur uppfært yfirlit yfir stöðu á biðlistum eftir völdum skurðaðgerðum. Eftir sem áður eru biðlistar lengstir eftir skurðaðgerð á augasteini og gerviliðaaðgerðum á mjöðm og hné. Í þessum aðgerðaflokkum er einnig fjölgun þeirra sem beðið hafa meira en þrjá mánuði mest áberandi.

Embættið telur þó biðina eftir hjartaaðgerðum einna alvarlegasta, en hana megi að hluta rekja til þess að Hjartagátt Landspítala var lokuð í um tvær vikur vegna verkfalls hjúkrunarfræðinga í maí og júní, sem hafi haft áhrif á bið eftir myndatöku og kransæðavíkkun.

Viðmið landlæknisembættisins hvað biðtíma eftir mikilvægum aðgerðum varðar eru 90 dagar eða þrír mánuðir. Af þeim völdu aðgerðum sem hér eru til skoðunar hafa rúmlega 4700 aðgerðir beðið framkvæmdar lengur en þrjá mánuði á landinu öllu. Munar þar miklu um verkföll heilbrigðisstarfsfólks sem stóðu í sumum tilvikum yfir í rífa þrjá mánuði.