Íslenskur sjávarútvegur framleiðir um 20 milljónir máltíða daglega. Það er auðséð að verðmæti hverrar máltíðar þarf ekki að aukast mikið til að auka gjaldeyristekjur fyrir íslenskt samfélag.
Þetta segir Kolbeinn Árnason framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi á vef samtakanna sfs.is, en hann segir þar að samtökin hafi fengið fjölda sérfræðinga úr ýmsum áttum, innlenda og erlenda, til að ræða það á síðasta ársfundi SFS hvernig hægt væri að gera enn betur. „Því þrátt fyrir alla þá stórkostlegu hluti sem sjávarútvegurinn hefur áorkað á liðnum árum þá erum við nefnilega bara rétt að byrja,“ skrifar hann á vef sinn.
Fyrirlestur Kolbeins má núna finna á www.sfs.is.