Tuttugu manna hópur á vegum velferðarráðs Reykjavíkurborgar heldur í dag í ferðalag til Lundúna sem er áætlað að muni kosta borgina um þrjár milljónir króna. Um fræðsluferð er að ræða þar sem forsvarsmenn velferðarmála í borginni munu kynna sér málefni fjölskyldna, þróun heimaþjónustu og nýsköpun í félagsþjónustu svo eitthvað sé nefnt.
Björk Vilhelmsdóttir, formaður velferðarráðs, segir að hér sé um fyrstu utanför ráðsins að ræða frá því fyrir hrun og þó að svigrúmið sé lítið þá sé þörfin á að sækja hugmyndir að utan yfirsterkari. Endanleg dagskrá ferðarinnar lá ekki fyrir þegar dv.is ræddi við Björk fyrir helgi, en ferðin tekin fjóra daga.