Heilsa: 20% beint úr vösum sjúklinga

Mikill niðurskurður í heilbrigðiskerfinu og aukin útgjöld beint upp úr vösum sjúklinga er ávísun á stéttaskipta heilbrigðisþjónustu eftir fjárhag landsmanna. Það þýðir að efnameiri munu búa við meiri lífsgæði en aðrir og að lífslíkur velti jafnvel á efnahag.

Fjölmörg dæmi eru um að Íslendingar veigri sér við að leita sér læknisþjónustu vegna kostnaðar. Eftir að lifrarbólgumál Fanneyjar Bjarkar Ásbjörnsdóttur kom upp hefur fjöldi Íslendinga haft samband við Hringbraut og lýst eigin reynslu sem ber vitni um það. Áður hefur verið fjallað um að kostnaður við krabbameinmeðferð hafi hlaupið á milljónum beint úr vösum fárveikra, þeirra sem síst skyldu hafa áhyggjur af kostnaði og eru e.t.v. dottnir út af atvinnumarkaði vegna veikinda.

Ögmundur Jónasson, fyrrum heilbrigðisráðherra, segir engan vafa leika á því að ef minni áhersla verði lögð á að heilbrigðiskerfið sé fjármagnað með sameiginlegum sjóðum í gegnum skattakerfið, geti bara eitt gerst; að veikir greiði kostnaðinn í auknum mæli úr eigin vasa. „Það hefur ágerst síðustu áratugi. Nú er svo komið að fimmtungur af greiðslum rennur beint úr vösum sjúklinga sjálfra. Ef við vindum ekki ofan af þessu blasir hér ekkert annað við en stéttaskipt heilbrigðisþjónusta,“ segir Ögmundur.

Ögmundur vísar til rannsókna sem bæði Krabbameinsfélag Íslands og Félagsvísindastofnun HÍ hafi unnið, að sjúklingar greiði nú orðið 20% sjálfir af kostnaði við heilbrigðisþjónustu. Þeir sem hafi unnið þessar rannsóknir haldi sjálfir fram á grunni vísindalegra gagna að tekjulítið fólk verði æ tregara að leita sér lækninga vegna þess að fólk hafi ekki efni á því. „Þetta er hrikalegur heimur,“ segir Ögmundur og telur brýnt að þingmenn og ríkisstjórnin tryggi aukið fé til heilbrigðismála. Hringbraut ræddi við hann eins og lesa má hér.