20% aukning gistinátta í maí

Gistinætur á hótelum í maí voru 216.500 sem er 20% aukning miðað við maí 2014. Gistinætur erlendra gesta voru 85% af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum en þeim fjölgaði um 28% frá sama tíma í fyrra. Gistinóttum Íslendinga fækkaði hins vegar um 12%.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands, en þær tölur sem þar liggja fyrir ríma ágætlega við heildarfjölgun ferðamanna á´landinu í ár, en búist er við að ein milljón og 250 þúsund útlendir ferðamenn leggi leið sína til Íslands í ár, sem er 25% fjölgun frá síðasta ári.

Flestar gistinætur á hótelum í maí voru á höfuðborgarsvæðinu eða 138.800 sem er 13% aukning miðað við maí 2014. Næst flestar voru gistinætur á Suðurlandi eða um 31.200. Erlendir gestir með flestar gistinætur í maí voru Bandaríkjamenn með 39.500, Þjóðverjar með 31.900 og Bretar með 23.500 gistinætur.

Á tólf mánaða tímabili, júní 2014 til maí 2015, voru gistinætur á hótelum 2.463.500 sem er fjölgun um 14% miðað við sama tímabil ári fyrr.