19 milljarðar renna úr ríkissjóði

Nítján milljarðar verða renna úr ríkissjóði í dag til heim­ila lands­ins en þar er um að ræða end­ur­greiðslu á of­greidd­um skött­um, barna­bæt­ur og vaxta­bæt­ur sem fjöldi fólks fær, en svo eru aftur hinir sem leggja sjóðnum til fé vegna skulda við skattinn.

Heild­ar­fjár­hæðin sem greidd er út hækk­ar úr 17,7 millj­örðum króna í 19,0 millj­arða króna á milli ára. Hækk­un­in skýrist einkum af of­greiddri staðgreiðslu tekju­skatts og út­svars sem leiðrétt er með end­ur­greiðslu. Þá mun rík­is­sjóður greiða 2,6 millj­arða króna í barna­bæt­ur 1. nóv­em­ber næst­kom­andi.

Að því er fram kemur í samantekt Morgunblaðsins í dag verða greidd­ir út 2,6 millj­arðar króna í barna­bæt­ur, 5,9 millj­arðar í vaxta­bæt­ur og 9,3 millj­arðar vegna of­greiddr­ar staðgreiðslu tekju­skatts og út­svars og 845 millj­ón­ir vegna of­greiddr­ar staðgreiðslu fjár­magn­s­tekju­skatts.

Inn­eign fram­telj­enda að lok­inni álagn­ingu er alls 22,4 millj­arðar króna en 3,5 millj­arðar af henni verður ráðstafað upp í kröf­ur vegna van­gold­inna gjalda.

Fram kem­ur á vef fjármálaráðuneytisins að greiðslur barna­bóta aukast á milli ára og nema tíu millj­örðum króna sem er 5,1% aukn­ing frá fyrra ári. Rúm­lega 48 þúsund fjöl­skyld­ur fá barna­bæt­ur á þessu ári sem er 9,5% fækk­un frá ár­inu 2014. Fjár­hæð meðal­bóta hækk­ar hins veg­ar um­tals­vert, eða um rúm­lega 16% á milli ára en all­ar fjár­hæðir barna­bóta­kerf­is­ins voru hækkaðar veru­lega í upp­hafi árs­ins.

Í álagn­ingu eru ekki reiknaðar barna­bæt­ur á þá sem eru með áætlaðan tekju­skatt­stofn. Vegna þess gætu barna­bæt­ur átt eft­ir að aukast um að minnsta kosti 300 millj­arða króna. Hlut­fall áætlaðs tekju­skatts­stofns hef­ur farið lækk­andi síðustu ár og nem­ur nú um 3% af heild­ar­tekju­skatts- og út­svars­stofni.

Al­menn­ar vaxta­bæt­ur vegna vaxta­gjalda af lán­um til kaupa á íbúðar­hús­næði, sem ein­stak­ling­ar greiddu af á ár­inu 2014, nema sjö millj­örðum króna sem er 12,6% lækk­un á milli ára. Al­menn­ar vaxta­bæt­ur fá tæp­lega 38 þúsund fjöl­skyld­ur á ár­inu 2015 og fækk­ar þeim um 10% á milli ára.