183 þúsund fleiri en í fyrra

Um 186 þúsund erlendir ferðamenn fóru frá landinu í í gegnum Flugstöð Leifs Eiríkssonar í júní síðastliðnum samkvæmt talningum Ferðamálastofu. Það eru  nærri 50 þúsund fleiri en í júní í fyrra. Erlendum ferðamönnum heldur því áfram að fjölga á milli ára. Aukningin nemur tæplega 36 prósent á milli ára í júní og frá áramótum nemur hún rúmlega 35 prósentum. Nú hafa tæplega 700 þúsund erlendir ferðamenn komið frá áramótum, 183 þúsund fleiri en á sama tíma í fyrra.