18 stiga frost í vetrarkortunum

Spáð er að heita fimbulkulda á landinu bláa næstu daga og eru líkur á 18 stiga frosti þegar dregur nær helgi, en kaldast verður eins og stundum áður í afgerandi norðanátt í innsveitum norðanlands.

Þegar líður á vikuna verða él með norður og austurströndinni og allra syðst seinnipartinn.

Vetrarfærð er á Vestfjörðum - víða éljagangur og nokkur hálka eða snjóþekja, einkum á fjallvegum. Verið er að moka Dynjandisheiði og Hrafnseyrarheiði - og eins norður í Árneshrepp.

Nokkur hálka er á köflum í Húnavatnssýslum en frá Skagafirði og austur er víða éljagangur og snjóþekja eða hálka. Þæfingsfærð er á Dettifossvegi.

Á Austurlandi er víða éljagangur eða jafnvel snjókoma. Snjóþekja er á Möðrudalsöræfum, Vopnafjarðarheiði og Vatnsskarði eystra, hálka á Fjarðarheiði, Fagradal og Oddsskarði en hálkublettir milli Fáskrúðsfjarðar og Breiðdalsvíkur. Ófært er um Breiðdalsheiði og Öxi.

Ástand vega á Suður- og Vesturlandi er skaplegt: Vegir eru að heita má auðir bæði á Suður- og Suðausturlandi og á Vesturlandi er hálka á Holtavörðuheiði og Laxárdalsheiði, en hálkublettir m.a. á Bröttubrekku og Fróðárheiði.