18 látist í umferðarslysum á árinu

Alls hafa átján manns látist í umferðarslysum á árinu sem er að líða. Mannskæðasta slysið á árinu varð í þessari viku þegar þrír létust í umferðarslysi á brúnni yfir Núpsvötn á Skeiðarársandi. Í heildina áttu 28 banaslys sér stað á árinu. RÚV.is tók saman.

Í samantekt RÚV kemur fram að þegar kom að umferðarslysunum hafi þrír látist í janúar, í mars hafi einnig þrír látist, í maí hafi einn látist, í júní létust fimm, í september lést einn, í október lést einn, í nóvember lést sömuleiðis einn og eins og áður segir eru þrír látnir í desember.

Önnur banaslys sem urðu á árinu og flokkast ekki sem umferðarslys eru samtals tíu. Þrír af þeim fórust í eldsvoða, þrír drukknuðu, tveir létust eftir fall, einn lést eftir vinnuslys og einn lést eftir að hafa andað að sér eitruðum lofttegundum í íshelli.