18 ára piltur lést í bílslysinu

Átján ára pilt­ur lést í um­ferðarslysi við bæ­inn Ein­arsstaði í Kræk­linga­hlíð, skammt norðan Ak­ur­eyr­ar, síðdeg­is í gær.

Frá þessu greinir Morgunblaðið.

Pilt­ur­inn var flutt­ur á Sjúkra­húsið á Ak­ur­eyri en var úr­sk­urðaður lát­inn við kom­una þangað. Lög­regl­an vinn­ur að rann­sókn máls­ins en um var að ræða árekst­ur vöru­flutn­inga­bif­reiðar og fólks­bíls, að því er fram kemur í Morgunblaðinu.

Ökumaður fólks­bíls­ins lést og var einn í bíln­um.

Þrír voru í vöru­flutn­inga­bif­reiðinni og voru þeir einnig flutt­ir á Sjúkra­húsið á Ak­ur­eyri, en meiðsl þeirra eru ekki alvarleg.