18-30% karla hafa haldið framhjá

Framhjáhald maka er áfall af stærstu gráðu sögðu sérfræðingar þáttarins Fólk með Sirrý á miðvikudagskvöld, en þar fór fram hispurslaus og upplýsandi umræða um orsakir og afleiðingar þessa meins í hjónabandi fólks.

Í þættinum kom fram að framhjáhald er umræða sem snertir marga. 18 til 30% karla hafa haldið framhjá og 15 til 25% kvenna hafa haldið framhjá samvkæmt rannsóknum sem Ágústa Ósk Óskarsdóttir hefur gert, en hefur skrifað ritgerð í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands um það hvort parasambönd eiga líf eftir framhjáhald. 

Aðrir gestir þáttarins voru séra Guðrún Karls Helgudóttir, prestur í Grafarvogi sem er vön að tala við fólk í gleði og sorg, hjónavígslum og skilnuðum og Hafliði Kristinsson, fjölskylduráðgjafi sem fær margt fólk til sín sem er í sárum vegna framhjáhalds. 

Þau sögðu meðal annars að það að maki haldi framhjá sé áfall af stærstu gráðu. Og stressið sem það skapi sé eins og að ljón ráðist á mann. ,,Það ,,lendir enginn í framhjáhaldi\" heldur er það ákvörðun\" sagði séra Guðrún. 

Og allir viðmælendur hvöttu fólk til að ræða um hvað er trúnaður og trúnaðarbrot við maka sína. Og vita hvernig þau ætli að bregðast við ef tækifæri til framhjáhalds gefst t.d. í vinnustaðaferðum erlendis. Makalaus partý, ferðir til útlanda og netið eru aðstæður sem auka hættuna á framhjáhaldi. 

Þáttinn má sjá í heild sinni eða að hluta með því að smella hér, en Fólk með Sirrý er frumsýnt í haust og vetur á miðvikudagskvöldum klukkan 20:00 og endursýnt strax klukkan 22:00.