Flestir fara flóttamennirnir frá Ungverjalandi til annarra ríkja, að því er fram kemur í samantekt RÚV um flóttamannastrauminn í dag, en þar nefnt sem dæmi að 12.200 flóttamenn hafi komið til München í Þýskalandi í gær. Þar sé fjöldinn orðinn slíkur að erfitt sé að sinna þeim, að sögn talsmanns lögreglunnar í borginni. Búist sé við nokkrum hundruðum til viðbótar til borgarinnar í dag.
Viktor Orban, forsætisráðherra Ungverjalands hefur lýst því yfir að hann ætli að loka landamærunum að Serbíu á þriðjudag. Engum verði hleypt til landsins sem ekki hafi gild skilríki. Unnið sé að því að reisa fjögurra metra háan múr á landamærunum. Verkið sé langt komið. Yfir fjögur þúsund ungverskir hermenn eigi að vera lögreglunni til aðstoðar við að stöðva flóttafólkið.
Alexander Dobrint, samgönguráðherra Þýskalands, segir í yfirlýsingu, sem hann sendi frá sér í dag, og RÚV greinir frá í frétt sinni, að Evrópusambandinu hafi gjörsamlega mistekist að verja ytri landamæri sín. Grípa verði til aðgerða til að stöðva flóttamannastrauminn með því að koma á virku landamæraeftirliti. Þá þurfi að aðstoða þau lönd sérstaklega, þangað sem flestir komi. Dobrint er úr Kristilega þjóðarflokknum í Bæjaralandi, samstarfsflokki Kristilegra demókrata í þýsku sambandsstjórninni.