Reisa þarf 17 þúsund íbúðir á árunum 2017-2019 til að mæta undirliggjandi þörf og uppsöfnuðum skorti frá árinu 2012. Til samanburðar voru um 1.500 íbúðir byggðar árið 2016.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu hagdeildar Íbúðalánasjóðs um þörf fyrir íbúðir hér á landi sem birt var í dag. Þar segir að þrátt fyrir aukinn kraft í uppbyggingu íbúða um þessar mundir verði að teljast ólíklegt að uppsafnaður skortur frá árinu 2012 hverfi að fullu á næstu tveimur árum, þótt hann gæti minnkað. Von er á tölum um nýbyggingar og fólksfjölgun fyrir nýliðið ár, sem munu varpa frekara ljósi á stöðuna.