17,6 stiga hiti á siglufirði og landsmet!

Hitabylgja gærdagsins er söguleg í veðurfarslegri greiningu. Trausti Jónsson veðurfræðingur bendir á bloggsíðu sinni á að hiti fór í 17,6 stig á Siglufirði í gærkvöld sem er met á þessum árstíma. Hitinn fór í 10 stig eða meira á 48 stöðvum í byggð í gær af alls 107.

\"Siglufjarðarhitinn er landsdægurmet og reyndar hæsti hiti sem nokkru sinni hefur mælst á landinu fyrstu 26 daga marsmánaðar. Þetta er annað landsdægurmetið í mánuðinum - sem þó hefur ekki verið neitt sérlega hlýr, er nú 0,9 stigum ofan meðallags síðustu tíu ára í Reykjavík, en -0,4 undir því á Akureyri,\" skrifar Trausti.

Þá kemur fram skv. gðgnum frá Veðurstofu að hitinn á Seyðisfirði hafi farið í 16 gráður í dag.