17. lygni dagurinn frá áramótum

Vetrarlægðirnar hafa sjaldan eða aldrei riðið jafn þétt yfir Ísland og þennan kaldasta part ársins, en þær hafa skóflað hingað meiri stórviðrum en menn eiga að venjast, þar á meðal björgunarsveitarmenn sem fengu á sjötta hundrað beiðnir um aðstoð í gærdag þegar mjög kröpp lægð kom, sá og sigraði stærstu tré og skjólveggi, garðhýsi og gáma, grindverk og gangstéttir og jafnvel bifreiðar sem tókust á loft undan veðurþunganum.Ofviðrinu hefur slotað um sinn - og þótt ekki eigi að heita algert skjallalogn um land allt mun þetta engu að síður vera 17. lygni dagurinn það sem af er árinu. 56 daga hefur verið gefin út stormviðvörun frá áramótum sem mun vera einsdæmi en veðrið sker sig að öðru leyti úr hvað sterkar vindhviður varðar, en nánast aldrei hefur styrkur vinds farið jafn oft yfir 40 m/s og á þessum herrans harðavetri.


Ekki er sumsé von á stormviðvörun í dag, aldrei þessu vant, en vindurinn er þó ekkert að hvíla sig eða leggjast í kör, því seinna í dag er von á skilum úr suðri og með þeim hvessir um stund af austri sunnanlands. Hviður geta nálgast 40 m/s á milli undir kvöld við Eyjafjöll og á Kjalarnesi. Á fjallvegum á Vestfjörðum er spáð ofanhríð en annars nær víðast hvar að á hlána. 


Allvíða er varað við vegaskemmdum þar sem slitlag hefur skemmst í hvassviðri. Það er hálka og hálkublettir allvíða bæði á Suður- og Vesturlandi en á Vestfjörðum er öllu meiri hálka og víða einnig snjóþekja. Hálka og hálkublettir eru á Norðurlandi vestra en frá Eyjafirði og austur eru velflestir vegir auðir.Á Austurlandi eru flestir vegir greiðfærir en hálkublettir eru á fáeinum fjallvegum. Greiðfært er með suðausturströndinni.