165 vilja gera útilistaverkið

Alls 165 myndlistarmenn hafa lýst yfir áhuga á því að vinna útilistaverk í Vogabyggð í Reykjavík í samkeppni sem Reykjavíkurborg hleypti af stokkunum í apríl. Vogabyggð er nýtt hverfi í mótun og hluti af stærra þróunarsvæði við Elliðaárvog og Ártúnshöfða sem mun taka miklulm breytingum á næstu árum. Hverfið í heild afmarkast af Kleppsmýrarvegi, Sæbraut og Súðarvogi og er skipt í fimm svæði. Samkeppnin var auglýst alþjóðlega og eru 70 prósent umsóknanna frá listamönnum búsettum erlendis.

Í nýja hverfishlutanum verður blönduð byggð.  Íbúðarhúsnæði verður á flestum lóðum og heildarbyggingarmagn um 155.000 fermetrar   fyrir þær 1.100 íbúðir sem áætlað er að byggja. Atvinnuhúsnæði verður á um 56.000 fermetrar .

Forvalsnefnd mun velja úr innsendum umsóknum frá allt að átta listamönnum eða hópum til þess að vinna að tillögum að listaverkum fyrir hverfið. Stefnt er að því að ljúka valinu 28. Maí næstkomandi.

Samkeppnin er haldin samkvæmt samkeppnisreglum Sambands íslenskra myndlistarmanna (SÍM). Listamennirnir/hóparnir sem verða fyrir valinu fá greiddar 600.000 kr. hver fyrir tillögugerðina. Forvalsnefnd er skipuð þremur fulltrúum: Frá menningar- og ferðamálaráði Reykjavíkurborgar, frá innkaupanefnd Listasafns Reykjavíkur og frá SÍM.