Ríflega 1600 skjálftar voru staðsettir og yfirfarnir í vikunni af Veðurstofu Íslands. Gera má þó ráð fyrir að sú tala sé vel undir réttum skjálftafjölda þessa vikuna og að raunfjöldi sé nær 4000 til 5000 skjálftar.
Langstærsti hluti þeirra skjálfta voru í hrinu sem stendur yfir á 20 km löngu svæði sem liggur NV-SA, um 10 km austur af Grímsey. Stærsti skjálfti vikunnar mældist M4.1 á því svæði að kvöldi 15. febrúar. Auk þess voru tæplega 30 skjálftar af stærð M3.0-M4.0 mældir á svæðinu. Stærstu skjálftar vikunnar utan hrinunnar var M3.4 á Reykjanestánni, um 12 km vestur af Grindavík, og M3.0 norður á Kolbeinseyjahrygg um 150 km norðan við Grímsey. Einnig var í byrjun vikunnar vart við hrinu um 5 km ANA af Selfossi. Sú hrina taldi tæplega 70 skjálfta. Þar var stærstur skjálfti mældur M2.0 um hálf átta að morgni 13. febrúar.