Tekjur Ríkisútvarpsins af kostun á dagskrárefni námu 158 milljónum króna á síðasta ári, að því er fram kemur í Fréttablaðinu í dag, en blaðið fékk þessar upplýsingar í krafti upplýsingalaga.
Í frétt blaðsins er vakin athygli á því að í lögum um Ríkisútvarpið segir að stofnuninni sé óheimild að afla tekna neð kostun dagskrárefnis, en megi þó víkja frá því banni aðeins ef um er að ræða útsendingu íburðarmikilla dagskrárliða til að mæta útgjöldum við framleiðslu eða kaup á sýningarrétti eða við útsendingu innlendra íþróttaviðburða og umfjöllun um þá.
Í svari skrifstofustjóra Ríkisútvarspins við fyrirspurn Fréttablaðsins segir að tekjur stofnunarinnar af kostunum í fyrra hafi mestmegnis tengst íþróttaviðburðum: \"Íburðarmiklir dagskrárliðir sem voru kostaðir voru Söngvakeppnin / Eurovision, leikna þáttaröðin Fangar og Menningarnótt.\"
Í nýrri fjölmiðlaskýrslu um vanda einkarekinna miðla er lagt til að taka RÚV af auglýsingamarkaði, en ríkisstofnunin er með 44% hlut af öllum ljósvakaauglýsingum í landinu. Í skýrslunni er ekki lagt til að taka stofnunina af kostunarmarkaði.