160 hafa sagt upp á landspítalanum

Nýr fundur var boðaður í morgun hjá ríkissáttasemjara í kjaradeilu heilbrigðisstarfsfólks og ríkisins en ólíklegt er talið að hann muni nokkrum árangri skila, enda liggur ekkert nýtt tilboð fyrir af hálfu stjórnvalda.

Ólafur G. Skúlason formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga metur það svo að til fundarins hafi verið boðað vegna þeirrar ákvæða laga sem skylda sáttasemjara að kalla deilendur saman á minnst tveggja vikna fresti á meðan á samningaviðræðum stendur. Hann telur því fundinn fyrst og fremst formsatriði.

Nú hafa 160 hjúkrunarfræðingar sagt upp störfum á Landspítalanum á þeim tæpu tíu dögum sem liðnir eru frá lagasetningunni. Það er liðlega tíund starfandi hjúkrunarfræðinga á þjóðarsjúkrahúsi landsmanna. Ef horft er til landsins alls nálgast fjöldi þeirra sem sagt hefur upp störfum 190 manns.

Það kemur til kasta gerðardóms eftir næstu mánaðamót að úrskurða kjör heilbrigðisstétta.