16 milljarða króna búbót úr sjó

Verðmæti sjávarafla af Íslandsmiðum gæti hækkað um 16 milljarða króna ef farið verður að tillögum Hafrannsóknastofnunar um auknar veiðar á þorski og ýsu sem kynntar voru í gær.


Stofnunin lagði þar til að þorskafli verði aukinn í 239 þúsund tonn, eða um 21 þúsund tonn og ýsustofninn í 36,400 tonn, eða um 6 þúsund tonn.


Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi meta það svo að verðmæti þorskafurða geti, að því gefnu að markaðsverð og aðrar aðstæður haldist svipaðar og nú, aukist um rösklega 14,9 milljarða og verðmæti ýsuafurða um 1,2 milljarða króna.


Mat Hafrannsóknastofnunar á síðustu árum hefur verið í þá veru að þorsksstofninn sé á góðri uppleið og er ráðgjöf hennar í ár í takt við þá góðu afkomu dýrmætasta botnsfisks Íslendinga hringinn í kringum landið.