Öll sextán framboðin sem skiluðu inn listum fyrir komandi borgarstjórnarkosningar voru úrskurðuð gild af yfirkjörstjórn í gær. Þó var vera eins frambjóðanda á lista Íslensku þjóðfylkingarinnar metin ógild þar sem hann er með lögheimili í Svíþjóð og því ekki kjörgengur. Var hann því tekinn af listanum.
Tekið var á móti framboðum á föstudag og laugardag. Ellefu skiluðu inn listum fyrri daginn en fimm þann seinni. Það er því viðbúið að kjörseðillinn verði stærri en fólk hefur vanist hingað til.
Flokkarnir sem verða í framboði eru, raðað eftir listabókstaf, Framsóknarflokkurinn, Viðreisn, Sjálfstæðisflokkurinn, Íslenska þjóðfylkingin, Flokkur fólksins, Höfuðborgarlistinn, Sósíalistaflokkur Íslands, Kvennahreyfingin, Miðflokkurinn, Borgin okkar, Píratar, Samfylkingin, Vinstrihreyfingin – grænt framboð, Karlalistinn og Frelsisflokkurinn.