Það segir auðvitað sína sögu um veðurlagið það sem af er ári að aðeins hefur lægt í 16 daga af þeim 70 sem liðnir eru frá áramótum. Í dag er 54. dagurinn sem vindur fer yfir stormviðmið, en það sem gerir veðrið ennþá óvanalegra er hversu oft vindinn hefur slegið yfir 40 m/s í hviðum eins og Elín Björk Jónasdóttir veðurfræðingur hefur áður minnst á í samtali við hringbraut.is. Það er því nokkuð gild ástæða fyrir því að starfsmönnum Vegagerðarinnar hafi gengið illa að ryðja helstu þjóðleiðir í vetur - og svo hefur einnig verið síðasta sólarhringinn eftir áhlaup síðustu lægðar. Holtavöðruheiðin er ennþá lokuð og þæfingsferð er í Bröttubrekku og þá er Fróðárheiði ófær. Loks er þungfært í Ísafjarðardjúpi og heiðar á kjálkanum margar viðsjárverðar. Búist er við ört vaxandi suðaustanátt um hádegi í dag - og kemur það ef til landsmönnum ekki á óvart að Veðurstofan varar við stormi og snörpum vindhviðum á sunnan og vestanverðu landinu í dag.
16 dagar frá áramótum án storms
Fleiri fréttir
Nýjast