16 börn stungin í japan - árásarmaðurinn stakk sjálfan sig

Lögreglan í borginni Kawasaki í Japan hafa handtekið mann á fimmtugs aldri fyrir stunguárás. Stakk maðurinn 16 börn og 3 fullorðna rétt hjá strætóstoppustöð í borginni, ekki langt frá skóla barnanna. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni stakk maðurinn sig sjálfan í hálsinn þegar hún nálgaðist hann. Yfirvöld segja að eitt barnanna og einn af þeim fullorðnu hafi látist í árásinni. Ástæða árásirnar er ókunn en hún átt sér stað klukkan 23:00 í gær að íslenskum tíma.