16 ára megi kjósa í vor

Frumvarp um lækkun kosningaaldurs í sveitarstjórnarkosningum úr 18 árum í 16 ár verður að öllum líkindum samþykkt.

Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd afgreiddi málið Alþingis til annarrar umræðu. Meiri hluti nefndarmanna, tveir úr stjórnarflokkunum og þrír úr stjórnarandstöðunni, styðja lækkun kosningaaldursins og leggja til að frumvarpið verði samþykkt. Þá verði hægt að koma breytingunum á fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar 26.maí næstkomandi. Morgunblaðið segir frá í dag.

Kosningaaldurinn verður einungis lækkaður þar sem nefndarmenn leggja jafnframt til að kjörgengi verði áfram takmarkað við 18 ára aldurinn.