15% telja alþingi verja hag fólks

Einungis 15% landsmanna telja að Alþingi standi vörð um hagsmuni almennings að því er fram kemur í nýrri könnun sem MMR hefur sent frá sér, en heildarfjöldi svarenda var 932 einstaklingar, 18 ára og eldri.


Spurt var um nokkra þætti sem varða ríkisstjórnina, stjórnaraðstöðuna og Alþingi í heild, en könnunin var gerð 15. til 20 maí. Fyrir utan þau tíðindi sem áður eru nefnd og vísa í lítilð álit þjóðarinnar á starfsemi Alþingis vekur og athygli að 65,4% sögðust frekar eða mjög sammála því að ríkisstjórnin leggi meiri áherslu á afkomu banka en heimilanna í landinu.


Þeir sem tilheyrðu tekjuhæsta hópnum (milljón á mánuði í heimilistekjur eða meira) voru líklegri en þeir sem hafa lægri tekjur til að telja að Alþingi standi vörð um hagsmuni almennings. Þeir sem tilheyrðu yngsta aldurshópnum (18 til 29 ára) voru líklegri til að vera sammála því að stjórnarandstaðan myndi stjórna landinu betur en ríkisstjórnin en þeir sem eldri eru.