15 rithöfundar með 34-40 milljónir

Fimmtán rithöfundar hafa fengið listamannalaun sem nema 34-40,8 milljónum króna síðustu 10 ár. Fjórir rithöfundar hafa fengið listamannalaun alla 12 mánuði ársins síðastliðin 10 ár.

Frá þessu greinir Fréttablaðið í dag og birtir með mynd með nöfnum þeirra sem mest hafa fengð.

Alls hafa ellefu rithöfundar fengið úthlutað listamannalaunum í níu ár eða lengur á síðustu tíu árum.

Í ár nema listamannalaun, sem eru líkt og fyrri ár verktakalaun, 351.400 krónum á mánuði.
Fram kemur að fagfélögin muni e.t.v. endurskoða verklagsreglur sínar varðandi úthlutunarnefndir í kjölfar gagnrýninnar umræðu um að listamenn skipi stjórn sem velji úthlutunarnefnd en í ár úthlutaði úthlutunarnefnd rithöfunda öllum í stjórn rithöfunda launum.


Sjá úttekt Fréttablaðsins hér.