Útlit er fyrir að erlendum ferðamönnum hér á landi fjölgi um 25% á næsta ári eða álíka mikið og þeim fjölgaði á milli áranna 2014 og 2015. Þetta merkir að minnst 1,5 milljónir erlendra ferðamanna sæki Ísland heim á næsta ári.
Fjölgun erlendra ferðamanna á Íslandi á síðustu árum hefur verið með hreinum ólíkindum. Frá árinu 2005 til 2010 tvöfaldaðist fjöldi þeirra - og það sama gerðist á milli áranna 2010 til 2015.
Fjölgun erlendra ferðamanna á milli tveggja síðustu ára, 2014 og 2015 nemur 25% og ef marka má spár tveggja helstu millilandaflugfélaga landsins, Icelandair og WOW Air má búast við því að fjölgunin nemi svipaðri prósentutölu á næsta ári sem merkir að erlendir ferðamenn til Íslands á næsta ári verða ekki undir hálfri annarri milljón.
Til samanburðar má nefna að árið 1980, fyrir hálfum fjórða áratug, voru erlendir ferðamenn á Íslandi innan við 100 þúsund á ári.