Landsvirkjun ætlar að stækka Búrfellsvirkjun um 100 megawött. Þetta kom fram í Bylgjufréttum í hádeginu.
Nýtt verður „allt það vatn sem rennur ónotað fram hjá virkjuninni\" eins og það var orðað í fréttum Bylgjunnar. Hún verður fullbúin vorið 2018.
Nýja virkjunin verður sjálfstæð virkjun með stöðvarhús neðanjarðar. Hörður Arnarson forstjóri segir virkjunina hagkvæma og mikilvæga, bæði á orkueiningu en einig auki hún rekstraröryggi kerfisins. Nýja orkuveitan verður fyrst og fremst nýtt á sumrin þegar rennslið er mest. Einnig verður afli beint inn í kerfið á öðrum árstíðum.
Útreikningar benda til að virkjunin muni kosta 13-15 milljarða og að allt að 150 manns starfi við að reisa hana.