Á síðustu sex árum hafa 15 fjármálafyrirtæki lagt upp laupana hérlendis vegna fjárhagserfiðleika, þar af tíu sem skilgreindar hafa verið með innlánsstofnanir sem annaðtveggja hafa farið í slitameðferð eða verið sameinuð öðrum fjármálastofnunum.
Þetta kemur fram í Viðskiptablaði Morgunblaðsins í dag þar sem segir að það sem af er þessu ári hafi þrír sparisjóðir runnið inn í Arion banka og Íslandsbanka.
Af fjármálastofnununum fimmtán voru tíu skilgreindar sem innlánsstofnanir. Það voru Byr og Sparisjóður Keflavíkur ásamt þeim tveimur sjóðum sem stofnaðir voru á grunni þeirra, Nýja Byr og SpKef, þá Sparisjóður Bolungarvíkur, Sparisjóður Svarfdæla og Sparisjóður Þórshafnar, en þessir sjóðir störfuðu síðustu misserin undir nafni Sparisjóðs Norðurlands, sem féll á þessu ári ásamt Sparisjóði Vestmannaeyja og AFL sparisjóði. Árið 2012 hafði Sparisjóði Ólafsfjarðar verið rennt inn í Arion banka.