Jóhannes Gunnar Bjarnason, kennari við Brekkuskóla á Akureyri, segir dæmi um á hans eigin vinnustað að nemandi, stúlka, hafi fyrst fengið karlkennara 15 ára gömul. Það hafi leitt til þess að hún hafi orðið óörugg.
Jóhannes er nýkominn úr rannsóknarferð með fleiri kennurum við skólann frá Bretlandi. Kennarahópurinn tók m.a. viðtöl við breskar skólastýrur en sama hefur gerst í Bretlandi og Íslandi að karlkennurum stórfækkar. Nefnd voru atriði eins og launakjör, virðingarleysi gagnvart stéttinni og að almennt væri litið á grunnskólakennslu sem starf fyrir konur.
„Þeir sem skrá sig í kennaranám í báðum löndum eru nær eingöngu konur þannig að ekki eru breytingar í farvatninu. Nýlegt dæmi er frá mínum vinnustað þar sem 15 ára stúlka fékk sinn fyrsta karlkennara og var‘ einfaldlega óörugg við þær aðstæður,“ segir Jóhannes.
Hann spyr hvort þessi kynjahalli kunni að hafa áhrif á þá staðreynd að mun fleiri piltar en stúlkur hætta námi í framhaldsskólunum.