Lára Didriksen og Ugla Stefanía Jónsdóttir eru gestir þáttarins Ég bara spyr sem sýndur verður á Hringbraut í kvöld. Þátturinn er nú hluti af nýrri þáttaseríu á Hringbraut: Lífið. Lífið hefst klukkan 20 en kl.20.15 hefst Ég bara spyr.
Í þætti kvöldsins, segir Lára frá því því ferli sem kynleiðrétting er fyrir ungt fólk, en Lára er sjálf 15 ára. Að sögn hennar og Uglu Stefaníu, sem fór í gegnum sama ferli fyrir nokkrum árum síðan, er leiðrétting á kyni ekki eitthvað sem fólk uppgötvar endilega þegar það er orðið fullorðið, heldur oft sem börn eða unlingar. Sjálf sagðist Lára ekki hafa sagt foreldrum sínum strax, að hún teldi sig í röngu kyni. Fyrst leitaði hún sér upplýsinga á netinu, fann myndbönd á Youtube með transfólki og gúgglaði sér síðan frekari upplýsingar. Í þættinum er farið yfir frásögn Láru og algengustu spurningar fólks um kynleiðréttingar. Þar segir Ugla Stefanía margan misskilja um hvað kynleiðrétting snýst og til dæmis er það algengt að fólk rugli saman leiðréttingu á kyni og kynhneigð. Hér má sjá brot úr viðtalinu við Láru þar sem hún segir frá því hvar og hvenær hún sagði foreldrum sínum að hún væri í rauninni stelpa. Þátturinn verður endursýndur á morgun miðvikudag og um næstu helgi.