1.450 greinast með krabbamein á ári

Sjónum var beint að krabbameini í bleikum október í þættinum Fólk með Sirrý í gærkvöld, en þar var skoðað hvað Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins gerir fyrir krabbammeinssjúka og aðstandendur þeirra.

Þáttinn má sjá í klippum eða í heild sinni á hringbraut.is, en hann verður og endursýndur á Hringbraut í dag.

Á hverju ári greinast 1.450 manns með krabbamein á Íslandi. Í kringum hvern einstakling sem veikist er hópur fólks sem á um sárt að binda vegna þessa. Í þættinum segja gestir Sirrýjar frá því að þetta er í raun fjölskyldusjúkdómur, svo mjög hefur hann áhrif á aðstandendur þeirra sem greinast. Vilborg Davíðsdóttir rithöfundur nýtti sér Ráðgjafarþjónustuna þegar maður hennar veiktist og eftir að hann dó hélt hún áfram að mæta þangað í djúpslökun og viðtöl: \"Ráðgjafarþjónustan bjargaði lifi mínu og geðheilsu,\" segir Vilborg í þættinum. 

Sigrún Lillie Magnúsdóttir forstöðumaður Ráðgjafarþjónustunnar segir að það sé svo margt hægt að gera þó fólk greinist með þennan sjúkdóm: \"Það er alltaf von. Margt er hægt að gera,\" segir hún og bætir við að þjónustan er fólki að kostnaðarlausu. 

Í þættinum eru líka Atli Már Sveinsson íþróttafræðingur sem er með hópinn ,,Fítonskraft\" hjá Ráðgjafarþjónustunni. Og Nílsína Larsen Einarsdóttir sem nýtti sér þjónustuna þegar hún greindist með krabbamein en eftir að henni batnaði hóf hún þar störf og aðstoðar nú aðra í sömu sporum.