14 milljarða hótel við hörpu

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri mun í dag kynna nýtt hótel við Austurhöfn, sunnan tónlistarhússins Hörpu, en borgarbúar - og raunar landsmenn flestir - hafa lengi beðið eftir því að sárið sunnan við Hörpu grói og þar rísi veglegt hús sem sómi sér vel við hliðina á glæsihýsinu við Ingólfsgarð. Tómur grunnur hefur staðið þar um margra missera skeið í hjarta miðbæjarins. 


Reiknað er með að nýtt hótel við hliðina á Hörpu og íbúðarhúsnæði á nærliggjandi lóð hefjist á þessu ári og ljúki á fyrri hluta ársins 2017. Samkvæmt þessu á að freista þess að reisa stórbygginguna eins fljótt og nokkur kostur er.


Heildarfjárfesting verkefnisins er áætluð um 14 milljarðar, en í heild verða rúmlega 250 herbergi í hótelinu og 90 íbúðir, auk verslana í þeim fimm byggingum sem verða reistar næst hótelinu.


Hótelbyggingin er stórframkvæmd, en byggingin verður, án bílageymslu, um 16.400 fermetrar.