14 milljarða fjármögnun í höfn

Fjórtán milljarða króna hlutafjársöfnun Silicor Materials fyrir sólarkísilverksmiðju á grundartanga er í höfn. Erlendir hluthafar leggja til meirihluta hlutafjár, en íslenskir lífeyrissjóðir og fagfjárfestar hafa skráð sig fyrir næstum sex milljarða framlagi.

Í tilkynningu frá forkólfum fyrirtækisins í dag segir að um fyrri hluta fjármögnunarinnar sé að ræða en henni verði að fullu lokið um mitt sumar á næsta ári. Áætlað útflutningsverðmæti verði 50 til 60 milljarðar á ári.

Verksmiðjan muni framleiða sólarkísil fyrir sólarhlöð með umhverfisvænni framleiðsluaðferð Sólarkísill Silicxor muni nýtast til að virkja 38 sinnum þá orku sem fer til framleiðslunnar og þannig stuðla að sjálfbærri orkunýtingu í heiminum.

Tilkynning félagsins er að öðru leyti þessi: \"Silicor Materials hefur gengið frá samningum við Sunnuvelli slhf., félags í eigu íslenskra lífeyrissjóða og fagfjárfesta, þess efnis að félagið komi að uppbyggingu fyrirhugaðrar sólarkísilverksmiðju fyrirtækisins á Grundartanga með tæplega 6 milljarða króna eiginfjárframlagi. Einnig kemur hópur erlendra fjárfesta, þ.á.m. Hudson Clean Energy Partners og SMS Siemag, með tæplega átta milljarða króna eiginfjárframlag. Stuðningur innlendra fjárfesta er fyrirtækinu mikilvægur þar sem hann er forsenda fyrir þátttöku erlendra aðila í verkefninu. Centra fyrirtækjaráðgjöf hafði umsjón með fjármögnun verkefnisins fyrir hönd Silicor. Summa rekstrarfélag hf. er ráðgjafi Sunnuvalla slhf.

Heildarkostnaður við að reisa verksmiðjuna er áætlaður um 120 milljarðar króna. Gert er ráð fyrir að lánsfjármögnun undir forystu Þróunarbanka Þýskalands KfW standi að baki um 60% af heildarkostnaði, en fyrirtækið gerir jafnframt ráð fyrir að ráðast í seinni umferð hlutafjársöfnunar samhliða frágangi lánasamninga. Áætlað er að seinni fjármögnuninni ljúki um mitt ár 2016.

Undirbúningur að byggingu verksmiðjunnar á Grundartanga hefur staðið yfir í tvö ár og hafa að undanförnu verið stigin mikilvæg skref í þeirri vinnu. Nýverið undirritaði Silicor samning við danska verktakafyrirtækið MT Højgaard um byggingu verksmiðjunnar. Þá var gengið frá samningum við þýska iðnfyrirtækið SMS Siemag í mars síðastliðnum um kaup á vélbúnaði fyrir verksmiðjuna.

Áætluð fjárfesting Silicor á Íslandi vegna sólarkísilverksmiðjunnar er um 900 milljónir Bandaríkjadala, eða að jafnvirði um 120 milljarða króna, og verður því ein stærsta fjárfesting sem ráðist hefur verið í hér á landi. Starfsemi verksmiðjunnar flokkast undir hátækniiðnað og munu þar starfa um 450 manns í fjölbreyttum störfum, þar af um þriðjungur í störfum sem krefjast háskólamenntunar. Með tilkomu verksmiðjunnar verður mögulegt að áframvinna hérlendis kísilmálm sem framleiddur verður innanlands og auka þannig verulega virði þeirrar framleiðslu.

Styrkur Silicor verkefnisins liggur í nýrri framleiðslutækni sem hlífir umhverfinu og er ekki í andstöðu við náttúru og lífríki. Verksmiðjan mun árlega framleiða allt að 19 þúsund tonn af sólarkísli, sem notaður er í sólarrafhlöð, sem nýtt eru til að virkja raforku úr útgeislun sólarinnar. Orkuþörf verksmiðjunnar er um 85 MW, en með árlegri framleiðslu verksmiðjunnar er mögulegt að virkja allt 38 sinnum meiri raforku úr geislum sólarinnar. Áætlað er að árlegt útflutningsverðmæti afurða verksmiðjunnar verði á bilinu 50 til 60 milljarðar íslenskra króna.

Verksmiðjan byggir á nýrri framleiðsluaðferð sem Silicor hefur þróað og hefur einkaleyfi á og notast hefur verið við í verksmiðju félagsins í Toronto. Kostnaður Silicor við þróun þessarar framleiðsluaðferðar er um 250 milljónir Bandaríkjadalir. Þessi framleiðsluaðferð er mun umhverfisvænni og áhættuminni en sú aðferð sem almennt hefur verið notuð til framleiðslu sólarkísils.\"