14 gefa kost á sér hjá samfylkingu

Fjórtán gefa kost á sér í flokksvali Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor, en framboðsfrestur vegna þess rann út í gærkvöld. Flokksvalið fer fram 9. og 10. febrúar næstkomandi.

Frambjóðendurnir eru þeir Skúli Helgason, borgarfulltrúi sem sækist eftir 3. sæti, Teitur Atlason, fulltrúi á Neytendastofu sem stefnir á 7. til 9. sæti, Þorkell Heiðarsson, náttúrufræðingur sem vonast eftir 5. til 7. sæti, Aron Leví Beck, málari og byggingarfræðingur sem sækist eftir 3. sæti, Dagur B. Eggertsson, læknir og borgarstjóri sem einn frambjóðanda flokksins stefnir á oddvitasætið, Dóra Magnúsdóttir, varaborgarfulltrúi og leiðsögumaður sem vill 4. sæti, Ellen Calmon, fyrrverandi formaður ÖBÍ sem sækist eftir 5. sæti, Guðrún Ögmundsdóttir, fyrrverandi alþingismaður og tengiliður vistheimila sem hefur lýst því yfir að hún vilji baráttusætið á listanum, Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarfulltrúi sem stefnir á 2. sætið, Hjálmar Sveinsson, borgarfulltrúi sem vill verja 3. sætið sitt, Kristín Soffía Jónsdóttir, borgarfulltrúi sem æskir eftir 2. sæti, Magnús Már Guðmundsson, formaður borgarstjórnarflokks Samfylkingarinnar sem langar í 4. sæti, Sabine Leskopf, varaborgarfulltrúi sem sækist eftir 3. til 4. sæti og loks Sigríður Arndís Jóhannsdóttir sem vonast eftir 4. til 6. sæti.

Þetta merkir að einungis Dagur sækist eftir oddvitasætinu, en tvær konur, þær Heiða Björg og Kristín Soffía berjast um 2. sætið og þar á eftir koma fjórir karlar sem takast á um 3. sæti, þeir Skúli, Aron Leví, Hjálmar og Sabine.