Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, sæmdi í dag 14 Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. DV.is greinir frá.
Á meðal þeirra sem hlutu fálkaorðuna að þessu sinni voru leikarinn og grínistinn Laddi, söngvarinn og skemmtikrafturinn Páll Óskar, klipparinn Valdís Óskarsdóttir, Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður og Haraldur Briem fyrrverandi sóttvarnarlæknir.
Heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu hlutu eftirfarandi:
1. Agnes Anna Sigurðardóttir framkvæmdastjóri, Dalvík, riddarakross fyrir framlag til þróunar atvinnulífs í heimabyggð.
2. Árni Magnússon fyrrverandi skólastjóri, Garðabæ, riddarakross fyrir störf á
vettvangi félags- og skólamála.
3. Björg Thorarensen prófessor, Reykjavík, riddarakross fyrir kennslu og rannsóknir á sviði lögfræði.
4. Georg Lárusson forstjóri, Kópavogi, riddarakross fyrir störf í opinbera þágu.
5. Guðríður Ólafs Ólafíudóttir fyrrverandi formaður Sjálfsbjargar, Reykjavík,
riddarakross fyrir framlag til velferðar- og mannúðarmála.
6. Guðrún Sveinbjarnardóttir fornleifafræðingur, Bretlandi, riddarakross fyrir framlag til fornleifarannsókna.
7. Haraldur Briem fyrrverandi sóttvarnarlæknir, Reykjavík, riddarakross fyrir störf á vettvangi heilsuverndar og lýðheilsu.
8. Kristín Aðalsteinsdóttir fyrrverandi prófessor, Akureyri, riddarakross fyrir störf á vettvangi menntavísinda.
9. Margrét Frímannsdóttir fyrrverandi alþingismaður, Kópavogi, riddarakross fyrir störf í opinbera þágu.
10. Páll Óskar Hjálmtýsson tónlistarmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar tónlistar og jafnréttismála.
11. Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður, Seltjarnarnesi, riddarakross fyrir framlag til mannréttindamála og réttindabaráttu.
12. Tómas Knútsson vélvirkjameistari og stofnandi Bláa hersins, Sandgerði,
riddarakross fyrir framlag á vettvangi umhverfisverndar.
13. Valdís Óskarsdóttir kvikmyndagerðarmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar og alþjóðlegrar kvikmyndagerðar.
14. Þórhallur „Laddi“ Sigurðsson, leikari og tónlistarmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar menningar.