14 drengir umskornir frá 2006

Samkvæmt upplýsingum frá Embætti landlæknis við fyrirspurn fréttavefjarins Eyjunnar hafa samtals 14 drengir gengist undir umskurð frá árinu 2006.

Aðeins ein slík aðgerð hefur verið framkvæmd á heilbrigðisstofnun frá árinu 2006, en 13 slíkar aðgerðir á drengjum undir 18 ára aldri eru skráðar hjá sjálfstætt starfandi sérfræðingum á árunum 2010-2016 og einhverjar til viðbótar á fullorðnum einstaklingum.

Lagafrumvarp Silju Daggar Gunnarsdóttur, þingmanns Framsóknarflokksins um bann við umskurði hér á landi hefur vakið athygli út fyrir landsteinana, en samfélag gyðinga í Evrópu hefur brugðist hart við málflutningi Silju Daggar og óttast að frumvarpið, verði það að lögum, hafi keðjuverkandi áhrif á meginlandinu, en umskurður sé eðlilegur partur gyðingdóms og þar með trúfrelsi i heiminum.