Verkfall SFR-félaga hefst á miðnætti aðfaranótt fimmtudags og varir í tvo sólarhringa, hafi ekki samist fyrir þann tíma. Verkfallið hefur áhrif víða, meðal annars í Háskóla Íslands, en umsjónarmenn húseigna skólans eru félagar í SFR og því verða flest húsakynni skólans lokuð á meðan á verkfallinu stendur.
\"Þetta hefur mikil áhrif. Nánast öll kennsla í Háskólanum leggst af ef til verkfallsins kemur. Og það er bara mjög alvarlegt mál. Og þetta eru fyrst tveir kennsludagar. En ef allir dagarnir verða þannig að það verði verkfall, sem um er rætt, þá eru það 10 kennsludagar. Og síðan gæti mögulega komið allsherjarnámskeið í nóvember,“ segir Jón Atli Benediktsson, rektor Háskólans í samtali við fréttastofu RÚV.
Jón Atli segir við miðilinn að verkfallið hafi áhrif í öllum byggingum Háskólans nema í Háskólabíói, þar sem fyrirkomulag þar sé með öðrum hætti. Hann segir að það komi ekki til greina að aðrir gangi í störf umsjónarmanna, og opni húsakynnin: \"Rektor Háskóla Íslands getur opnað byggingar, það féll Hæstaréttardómur árið 1986 um það. En ég tel ekki rétt að rektor beiti sér í þessu máli,“ segir Jón Atli.
Aðspurður segist honum lítast illa á stöðu mála. „Mér sýnist þetta mjög þungt. Og ég býst því miður við því að það verði verkfall í það minnsta á fimmtudag og föstudag. En ég vona svo sannarlega að þetta leysist áður.“
Aron Ólafsson, formaður Stúdentaráðs segir við RÚV að verkfallið bitni á nemendum, enda komi það í einhverjum tilfellum í veg fyrir að próf fari fram: \"Stúdentar eru orðnir langþreyttir á því að núna, þriðja árið í röð, erum við að lenda í verkföllum. Og við erum orðin þreytt á því að vera verkfallsvopnið,“ segir Aron og segir dæmi num að nemendur muni ekki geta þreytt próf sem þeir eiga að þreyta. Miðmisserispróf séu að hefjast þannig að hjá sumum nemendum bitni þetta á prófunum. Aðrir komist ekki á fyrirlestra: \"Ef þetta heldur svona áfram getur þetta orðið langtum stærra vandamál,“ segir Aron við RÚV.