Sveitarfélögum sem skulda of mikið hefur fjölgað um eitt á milli ára, úr tólf í þrettán, að því er Viðskiptablaðið greinir frá í dag, en þar kemur fram að þrjú ný sveitarfélög eru yfir leyfilegu skuldaviðmiði; Bolungarvík, Ísafjarðarbær og Árborg. Skuldastaða Árborgar afa aukist verulega á milli ára, eða um sem næst 1,6 milljarði króna.
Tvö sveitarfélög sem voru yfir leyfilegu skuldaviðmiði í fyrra eru nú innan þess; Reykjavík og Seyðisfjörður. Skuldir Reykjavíkurborgar voru 216% af tekjunum árið 2013. Í ársreikningi síðasta árs er skuldaviðmiðið komið niður í 92%, en þá eru undanskildar skuldir Orkuveitunnar. Aðrar skuldir borgarinnar jukust um ríflega 800 milljónir króna milli ára.
Í frétt Viðskiptablaðsins kemur fram að langstærsti útgjaldaliður sveitarfélaganna er launakostnaður. Þá varð gríðarleg aukning í lífeyrisskuldbindingum milli ára, eða um 8,3 milljarða króna aukning.