Meðferðarheimilum fyrir börn í fíknivanda hefur fækkað úr 13 árið 2010 í aðeins 3 á þessu ári - og er nú svo komið að opinber þjónusta fyrir ungmenni í bráðavanda er af skornum skammti.
Þetta kemur fram í máli forsvarsmanna Olnbogabarna sem berjast fyrir bættum hag þessara viðkvæmu einstaklinga sem iðulega leiðast út á braut eiturefna á unga aldri, jafnvel innan við fermingu.
Bent hefur verið á að svokallað MST-úrræði, sem er heimaaðstoð við fjölskyldur í þessum vanda hafi verið aukin á síðustu árum, en aðstandendur Olnbogabarna segja þá þjónustu ekki vera til þess fallna að taka á vandanum þegar hann er hvað mestur, enda MST ætlað að grípa inn í vandann áður en hann er orðinn verulegur.
Þá sé þjónusta á þeim fáu meðferðarheimilum sem fyrir eru af skornum skammti, til dæmis komi þar sálfræðingur aðeins einn dag á viku, sem sé langt undir því sem þarf.
Niðurstaðan sé sú að fjöldi barna, á níunda tug, sé nú í bráðavanda án þess að fá tilhlýðilega þjónustu.