Hinn 13 ára gamli Sander Håpoldøy sem býr í Björgvin í Noregi vill að öll börn geti átt gleðileg jól. Frá því hann var sex ára gamall hefur hann selt heimabakaðar brauðbollur og notað ágóðann til að kaupa gjafir sem hann færir síðan Hjálpræðishernum.
Þetta kemur fram á norska fjölmiðlinum NRK. Sander segir í samtali við hann að hugmyndin hafi kviknað þegar hann frétti að sum börn fá engar jólagjafir. „Ég hugsaði þá hvernig mér hefði liðið ef ég hefði komið inn í stofu og ekki séð neinar gjafir. Sú tilhugsun gerði mig sorgmæddan,“ sagði Sander.
Í ár tókst honum að safna 44 þúsund norskum krónum, sem jafngilda um 600 þúsund íslenskum krónum. Fyrir þær keypti hann svo gjafir fyrir 600 börn og færði Hjálpræðishernum.
Paul-William Marti, starfsmaður Hjálpræðishersins, sagði að úrvalið hefði verið heldur fátæklegt þar til Sander kom færandi hendi. Á hverjum degi komi fólk við í starfsstöð hersins til að sækja gjafir fyrir börnin sín, því það hefur ekki efni á að kaupa þær.
Hingað til hefur Sander staðið einn að baki bakstrinum en í ár fékk hann hjálp frá foreldrum sínum við að baka og pakka gjöfunum inn. „Mér finnst þetta æðislegt hjá honum, og einstakt því honum datt þetta alveg sjálfum í hug,“ sagði móðir hans stolt.
„Mér leist ekkert á þetta fyrst því ég hélt að hann ætlaði að nota peninginn úr sölunni til að kaupa sér eitthvað fyrir sjálfan sig en hann sagði mér þá hvað hann hafði í hyggju og mér fannst það frábært.“