Nýtt hjúkrunarheimili rís

Nýtt hjúkrunaheimili ásamt þjónustumiðstöð og leiguíbúðum fyrir aldraða rís senn við Sléttuveg í Fossvogsdal. Hjúkrunarheimilið verður með  einstaklingsrýmum fyrir níutíu og níu íbúa.

Leiguíbúðir fyrir eldri borgara verða eitthundrað tuttugu og fimm talsins. Í nýrri þjónustumiðstöð verður matarþjónusta og afþreying ásamt tómstundastarfi og heilsurækt.

Skipulögð verður útivist og boðið upp á opið félagsstarf eins og það sem Reykjavíkurborg veitir í þjónustumiðstöðvum víðs vegar um borgina.

Guðmundur Hallvarðsson formaður Sjómannadagsráðs skrifaði undir samning og viljayfirlýsingu um byggingu og resktur nýja hjúkrunaheimilisins ásamt Degi B. Eggertssyni borgarrstjóra.

Í samninngum er sú nýbreyttni að Sjómannadagsráð mun byggja og eiga og reka fyrirhugaða þjónustumiðstöð sem verður samtengd Hrafnistuheimilinu og þrennum nýjum fjölbýlishúsum með leiguíbúðum Naustavarar sem er einnig í eigu Sjómannadagsráðs.

Byggingarframkvæmdir hefjast seinni hluta þessa árs og er gert ráð fyrir að þeim ljúki árið 2019. Í fysta áfanga verður nýtt hjúkrunarheimili byggt og í beinu framhaldi hefjast framkvæmdir við þjónustumiðstöð og leiguíbúðir.

Við Sléttuveg í Reykjavík hefur á undanförnum árum átt sér stað uppbygging íbúða fyrir eldri borgara. Með samsetningu þeirrar uppbyggingar sem nú er fyrirhuguð bjóðast eldri borgurum fleiri valkostir. Sjómannadagsráð ryður brautina á íbúðaleigumarkaði fyrir eldri borgara hér á landi. Markmiðið er að þeim sem kjósa að búa á eigin vegum sé gert það kleift í öruggu umhverfi sem er lagað að mismunandi þörfum aldurshópa.  

rtá

Nánar www.reykjavík.is    www.mbl.is