Það getur verið dýrt spaug að tala í símann undir stýri eftir hækkanirnar sem nýlega urðu á umferðarsektum.
Lögreglan stöðvaði ungan mann á Reykjanesbraut sem var að nota farsíma við akstur og var ekki með handfrjálsan búnað. „Hann fær 40.000 króna sekt fyrir athæfið og 80.000 að auki fyrir að hafa ekið á um 110 km hraða á þessum vegarkafla þar sem leyfður hámarkshraði er 80,\" segir á Facebook síðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
„Um var að ræða ungan ökumann með bráðabirgðaskírteini, en viðkomandi hafi áður brotið af sér í umferðinni og var kominn með staðfesta punkta í ökuferilsskrá. Eftir nýjasta brotið er ljóst að piltsins bíður akstursbann, en það er vonandi að hann læri af reynslunni og bæti ráð sitt í umferðinni.
Þennan mánuðinn er lögreglan að fylgjast sérstaklega með hraðakstri í umdæminu og farsímanotkun ökumanna, en sektir fyrir umferðarlagabrot hækkuðu verulega um síðustu mánaðamót. Þannig hækkaði sektin fyrir notkun farsíma án handfrjáls búnaðar við akstur úr 5.000 í 40.000 og vonandi verður það til þess að draga úr þessum hræðilega og hættulega ósið, sem margir ökumenn hafa orðið uppvísir að,“ segir lögreglan.
Lögreglan er þegar byrjuð að hafa afskipti af ökumönnum í kjölfar nýrrar reglugerðar.