12 þúsund landsmenn vilja hjálpa

Tólf þúsund Íslendingar hafa lýst sig reiðubúna til að veita aðstoð við að taka á móti flótta­mönn­um hér á landi. Fram­takið hef­ur vakið at­hygli er­lendra fjöl­miðla og er meðal ann­ars fjallað um Face­book síðuna Kæra Eygló Harðar – Sýr­land kall­ar í blöðum á borð við Telegraph, Time og Independent.

Það er rit­höf­und­ur­inn Bryn­dís Björg­vins­dótt­ir sem stofnaði Face­booksíðuna á sunnu­dags­kvöld og eftir það hafa streymt inn skrán­ing­ar þar sem fólk lýs­ir því hvernig það er reiðubúið að veita flótta­mönn­um aðstoð og um leið er rík­is­stjórn Íslands hvött til þess að taka móti fleiri flótta­mönn­um en þeim 50 sem stefnt er að veita hæli hér á landi í ár. Talið er að 14 af 22 milljónum íbúa Sýrlands séu á vergangi, þar af tvær milljónir sem eru í búðum í Tyrklandi og ein milljón í Líbanon. Þá er ótalinn sá fjöldi sem hefur reynt að komast landleiðina eða sjóleiðina yfir til Evrópu.

Rík­is­stjórn Íslands fund­ar í dag og verða meðal ann­ars mál­efni flótta­fólks til umræðu á fund­in­um.

Að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag hafa yfir sjö hundruð manns skráð sig til sjálf­boðaliðastarfa hjá Rauða kross­in­um til að aðstoða flótta­fólk við kom­una hingað til lands.

Í blaðinu kemur fram að ríft er er frá því að Rauði kross­inn tók að sér rétt­inda­gæslu fyr­ir hæl­is­leit­end­ur. Á þessu eina ári hafa 220 manns sótt um hæli á Íslandi. Á því ári fengu 12 ein­stak­ling­ar alþjóðlega vernd á Íslandi.

Fólkið sem hingað hef­ur leitað er af 39 ólík­um þjóðern­um. Lang­flest­ir sem hingað hafa leitað eru frá Alban­íu en á eft­ir kem­ur fólk frá Makedón­íu, Sýr­landi, Úkraínu og Írak.

„Nú í ág­úst­mánuði hafa 32 ein­stak­ling­ar sótt um vernd en aldrei áður hafa um­sækj­end­urn­ir verið jafn marg­ir í ein­um mánuði - sem er þó ekki enn liðinn.
Fólk get­ur því rétt ímyndað sér að skjól­stæðing­ar Rauða kross­ins meðal hæl­is­leit­enda skipta tug­um á hverj­um gefn­um tíma. Mik­il­vægt er að hlúa vel að því fólki sem kem­ur hingað úr mjög erfiðum og and­lega krefj­andi aðstæðum. Þar get­ur þú lagt okk­ur lið, með því að taka þátt í fé­lags­leg­um verk­efn­um með hæl­is­leit­end­um,“ seg­ir á vef Rauða kross­ins.