12 starfsmönnum var í dag sagt upp störfum hjá fjölmiðlafyrirtækinu 365.
Þetta staðfestir Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri félagsins samkvæmt frétt Rúv.
Uppsagnirnar eru liður í skipulagsbreytingum sem eru sagðar til að bregðast við breyttu umhverfi og áherslum í áhorfsvenjum. 9 karlar og 3 konur fengu uppsagnarbréfin í dag hjá 365.
Í herbúðum Rúv segja heimildarmenn Hringbrautar að starfsmenn þar spyrji sig hvort til standi að breyta starfsemi Ríkisútvarpsins með uppsögnum einnig og skipulagsbreytingum en í nýrri skýrslu um Rúv er sérstaklega vikið að vanda Rúv til að laða til sín unga áhorfendur. Áherslubreyting Rúv mun miða að aukinni áherslu á innlent og yngri markhópa.
Þátturinn The Voice Iceland á Skjá einum hefur malað bæði Stöð 2 og Ríkisútvarpið þegar kemur að áhorfi á föstudagskvöldum. Herma heimildir Hringbrautar að það sé mjög til umræðu hjá báðum sjónvarpsrisunum.